Early bird.. word..

Early Bird.. word...

23.01.2009 03:23:13 / erla

23.janúar 2009

Nauj nauj, ný færsla og ekki enn kominn febrúar!

Ekkert betra að gera en að blogga þar sem við systur höfum gjörsamlega snúið sólahringnum við í vikunni. Ég er í fríviku áður en ég byrja í verknámi á fæðingardeildinni upp á skaga og Krissa var að útskriftast á laugardaginn þannig að við ákváðum að fara í mini-útskriftarferð til Akureyrar. Merkilegt hvað ég geri miklu meira af viti hérna á norðurhorninu þegar ég er með gesti. Á tæpum 4 dögum höfum við þrætt öll kaffihús bæjarins, farið 1 sinni í bíó, 2 sinnum í leikhús, 3 sinnum út að borða og verið ansi duglegar við að skoða okkur um. Snjóbrettaplanið okkar varð því miður að bíða betri tíma sökum lélegs færis (rassinn á mér var hins vegar mjög þakklátur). Ætluðum heim í fyrramálið en eitthvað er spáin að svíkja okkur. En þá notum við daginn á morgun bara í áframhaldandi letilíf, sundlaugaferð, jólahúsið, út að borða og kaffihúsachill. Ekkert að því svosem :)

Annars er aðalútskriftarferðin fyrirhuguð í febrúarlok en þá ætlum við systur að skella okkur til Boston. Bara svona eins og maður gerir þegar efnahagsástandið er svona gott :D Þar ætla ég, með traustri aðstoð nýútskrifaðs tölvunarfræðings, m.a. að versla mér nýja tölvu í staðinn fyrir hálfs árs gömlu tölvuna mína sem lenti í flóaða-mjólkur-slysinu núna í desember. Annars höfum við aðallega setið sveittar við að skipuleggja hvar við eigum að borða. Höfum bara 4 daga í borginni en u.þ.b. 10 veitingastaði sem við verðum eiginlega að fara á. En þetta hefst allt með góðri skipulagningu og víðum buxum.


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.12.2008 15:45:41 / erla

29.des 2008

Rúmlega 2ja mánaða bloggpása. Er það ekki bara fínt?
Virðist sem svo að um leið og myndavélin mín bilaði þá hætti ég að blogga. Átti það nefninlega til að blogga um leið og ég henti inn myndum. En það er nú alltaf á stefnuskránni að kaupa nýja myndavél. One day... ;)

Annars er allt við sama svosem. Prófin búin, þá tók við vinna en er búin að vera í fríi yfir sjálfar hátíðirnar sem er ágætis tilbreyting! Fer svo aftur norður 7.jan og er ekki frá því að það sé smá tilhlökkun í gangi yfir því... svona eins og alltaf ;)
En þangað til er planið eftirfarandi: Sofa, sofa, borða, horfa á video, vinna 2 vaktir, borða, sprengja áramótin í tætlur, knúsa lillemann skæruliða, tjútta allhressilega í 25 ára afmælinu hennar Arndísar, sofa, borða, borða aðeins meira... og já, svo mun ég líklegast borða örlítið í viðbót við þetta ;) Ætli ég verði ekki bara að bruna beinustu leið af flugvellinum í ræktina þann 7.janúar hehe :D hlaupa þetta af mér ;)

Er þetta ekki bara orðið gott? Næsta blogg kemur í lok febrúar hehe ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.10.2008 14:32:06 / erla

Úff og púff

Stundum líða heilu mánuðirnir án þess að eitthvað markvert gerist. Svo kemur kannski bara ein vika þar sem allt gerist og allt fer á annan endann! Það óhætt að segja að það sé búin að vera svoleiðis vika núna. Úff.

En þetta er allt að komast í einhvern farveg þannig að vonandi að það rætist úr þessu öllu saman... og vonandi að það rætist úr helginni líka. Agnar er búinn að bjóða mér til sín í gourmet-mat í kvöld og svo verður kannski eitthvað útstáelsi á okkur eftir það ef sá gállinn er á okkur. Annað kvöld verður svo fyrsta Furulundarmatarboðið í Reykjavík. Höfum haldið okkur við Akureyri hingað til en þar sem að allir nema ég eru fluttir á suðvesturhornið þá liggur þetta betur við ;) En þetta verður voða gaman, allt of langt síðan við hittumst síðast. Þannig að þessi helgi mun samanstanda af fullt af góðum mat og Airwaves svona inn á milli.

Verknámið hérna fyrir sunnan er annars búið. Næsta vika er svo frívika sem fer í: að vera á skaganum, ættingjaknús, vinaknús og lærdóm.
Gott plan.


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.10.2008 17:34:06 / erla

Kunnulegt

QC er alltaf jafnskemmtilegt... líka í dag :D Svei mér þá ef ég og Penny eigum ekki bara eitthvað smá sameiginlegt hérna! hahaha ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

30.09.2008 18:13:48 / erla

September

Ok er ekki örugglega september??
Því það er búið að snjóa í dag!

Þetta er auðvitað út í hött. Það á ekki að snjóa í september. Ég veit alveg að það er október á morgun, en mér er sama. Það er bara rangt að það snjói í september.

Annað í fréttum er að ég er búin að kaupa mér flug suður á sunnudagskvöldið. Byrja í 2ja vikna verknámi á BUGL á mánudaginn næsta, ótrúlega spennandi! Væntanlega ekki það auðveldasta sem ég hef komið mér í, en ég hef að öllum líkindum bara gott af þessu :D

Trúi því hinsvegar ekki að það séu bara einhverjir 8 dagar eftir af skólanum! 8| Er bara núna út vikuna og svo er ekki skóli aftur fyrr en í einhverja 4-5 daga í lok nóvember. Þetta er alveg svakalegt, enda er búin að vera crazy keyrsla á okkur alveg síðan að skólinn byrjaði. Þegar ég fór eitthvað að þykjast panikka yfir þessu og yfir prófunum áðan þá benti fyrrverandi sambýliskona mín mér á að það væri þá bara minna efni eftir. Alltaf gott að taka Pollýönnu á þetta ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.09.2008 16:34:38 / erla

Elli-kerling

Jæja afmælið komið og farið... eða reyndar ekki alveg farið. Ég hef ákveðið að teygja úr hátíðarhöldunum þannig að þau ná núna yfir viku. Að verða 24 ára er semsagt bara svona eins og indverskt brúðkaup, margra daga athöfn.
Hélt rúmlega 20 manna kaffiboð með Krissu upp á skaga á sunnudaginn fyrir ættingja, á afmælisdaginn sjálfann fór ég með hjúkkunum mínum út að borða í hádeginu og á kaffihús um kvöldið, daginn eftir afmælið mitt héldum ég og Eva bekkjarsystir sameiginlegt kaffiboð því hún átti líka afmæli - þar mættu líka um 20 manns, og í kvöld er svo afmælispartý þar sem að þemað er neon. Já, ég hef voða gaman af því að eiga afmæli :D

Myndavélavesenið heldur bara áfram. Tók myndir í kaffiboðinu sem ég og Eva héldum en þær eru afskaplega óskýrar... nema myndirnar um kvöldið, þær eru allt í lagi. Þetta er skrítin vél. Myndirnar eru allavega komnar inn á myndasíðuna, þó þær séu nú ekkert til að hrópa húrra fyrir. Það er hinsvegar eins gott að ég nái einhverjum myndum af öllu neon-inu í kvöld! Það verður skrautlegt ;)

Og svona finnst að það er föstudagur minni ég á Topp 5 á föstudegi... í dag eru peningalög tekin fyrir.


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.09.2008 23:00:08 / erla

Helgarferð

Vei! Ég er að fara heim á morgun :)
Þó að ég sé að fara heim í byrjun október í verknám (á BUGL, jeij!) þá fannst mér ég bara verða að skella mér heim um afmælishelgi okkar Krissu og Kristínar Gróu. Annað gengur nú eiginlega ekki. Sister dearest á afmæli í dag, cousin dearest á sunnudaginn og ég á þriðjudaginn þannig að við ætlum að hittast á laugardaginn og gera eitthvað afskaplega sniðugt.

Annars þoli ég ekki að pakka fyrir svona "helgarferðir". Ég vil auðvitað pack light en það er auðveldara að segja það en framkvæma. Ég þarf auðvitað eitt dress fyrir hvert tilefni og svo auðvitað helst allavega tvo valkosti fyrir hvert tilefni. Og ég er búin að finna allavega 4 mismunandi tilefni sem þurfa mismunandi dress... you do the math ;) Ef ég ætlaði að taka allt með mér sem ég vildi þá tæki ég ábyggilega sértösku bara fyrir skó :haha:

Ætlaði svo að fara að setja inn myndir frá helginni en er bara búin að fá myndirnar frá föstudeginum frá henni Brynhildi minni, á eftir að fá myndirnar frá laugardeginum. Skellti því föstudagmyndunum inn í myndaalbúmið mitt núna, laugardagsmyndirnar úr partýi okkar sambýlisfólksins + Páll Óskar á Sjallanum koma svo seinna. Annars get ég farið að taka myndir aftur því að myndavélin mín lagaðist aftur á laugardaginn.. á einhvern afar dularfullan hátt! Skil þetta bara ekki.


Eva Mjöll, Kristín Katla og ég á Vélsmiðjunni á föstudaginn að bíða óþolinmóðar eftir því að klukkan yrði 24:00 ;)

En jæja best að henda einhverju í tösku.


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.09.2008 22:00:50 / erla

From Rocky Road

Eitthvað farið lítið fyrir skrifum hérna undanfarið... kannski bara of mikið að segja núna?

Kom allavega norður 22.ágúst með mömmu, pabba og Krissu með mér. Þau voru yfir helgina og við gerðum alvöru "útlandaferð" úr þessu og keyrðum út um allar trissur, fórum á Mývatn, skoðuðum nýja Fuglasafnið, Dimmuborgir, Húsavík og vel valda fossa. Skelltum okkur líka á Friðrik V og átum í hátt í fjóra klukkutíma. Það er ágætis árangur. Ég tók nú engar myndir af þessum herlegheitum okkar, en Krissa gerði það. Þær má sjá hér.

Svo hefur lífið bara gengið sinn vanagang hérna í Klettastígnum. Sakna Álfabyggðarinnar nú smááá verð ég að viðurkenna en þetta er alveg hreint ágætt.Skólinn er svo byrjaður á full speed og rúmlega það! Förum í verknám í byrjun október þannig að heilli önn af námi er troðið á einn mánuð. Spennandi! Maður á það til að vera í sjöföldum tíma í geðhjúkrun eða fimmföldum tíma í hjúkrun fullorðinna eða álika spennandi. Að halda einbeitingunni í svoleiðis tímum getur reynst erfitt satt best að segja. Og verknámið er svona næstum því komið á hreint, veit allavega að ég verð í Reykjavíkinni í 2 vikur, frá 6.okt-17.okt. Restina af verknáminu verð ég svo hérna fyrir norðan á lyfjadeildinni.

Var svo að setja inn myndir af okkur hjúkkunum síðan í gær. Elduðum saman vinkonurnar og skelltum okkur svo í Sjallann á Eurobandið. Rosa stuð. Myndavélin mín tók reyndar upp á því að eyðileggjast... aftur! Skrambans ólán það. Þoli ekki að vera myndavélalaus. En náði nú samt að taka einhverja tugi mynda áður en að það gerðist þannig að þær má sjá hér.



» 7 hafa sagt sína skoðun

19.08.2008 00:27:02 / erla

Update

Get ekki sofnað og Halldóra er búin að leggja fram pöntun um blogg hér að neðan... verst að ég hef ekkert að segja ;)

Seinasta vaktin er núna á miðvikudaginn og svo er það bara stórborgin Akureyri á föstudaginn. Get svoleiðis svarið það, sumarið var rétt að byrja og þá er það allt í einu búið! En mér finnst það samt eiginlega bara fínt, það verður rosalega gott að fara aftur norður :D Hef þó áhyggjur af því að ég hef orðið ansi Bjarts-háð undanfarna mánuði og það verður líklega erfitt að venja sig af þeim ávana! Svo verður líka skrítið að hafa ekki Brynjuna mína, ekki Evuna mína og ekki Furulundarstrákana mína fyrir norðan. Sem betur fer er restin af hjúkkunum mínum svo afskaplega ráðsettar dömur með börn og bú að ég treysti því að þær yfirgefi mig ekki í bráð ;)

Annars ætla ég að kveðja suðvesturhornið á fimmtudaginn með því að skella mér á Mamma Mia Sing-Along sýningu! Mikið hlakka ég til :d Átti svo erfitt með mig að syngja ekki með þegar ég sá hana fyrst. Nú stefni ég á að gala hástöfum með myndinni og skammast mín nákvæmlega ekkert fyrir það! ...sem er ansi auðvelt í dimmum bíósal ;)

Er annars að henda inn böns af myndum frá því í júlí og ágúst. Þar er boðið upp á ýmislegt: sápukúlumyndir, þrítugsafmælismyndir, fjölskyldumyndir, matarklúbbsmyndir (þó ekki matarklúbbur gráðugu svínanna, tók því miður engar myndir þar, heldur matarklúbburinn sem enn hefur ekki fengið nafn), verslunarmannahelgarmyndir úr Húsafelli og 2ja ára afmælis-myndir.


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.07.2008 23:01:47 / erla

Fröken Hrifnæm

Mikið þoli ég ekki þegar ég missi mig í spenningi yfir einhverju og svo gengur það ekki upp. Náði að magna upp spennu vegna íbúðamála minna í dag og svo 4 tímum seinna kemst ég að því að það á ekki eftir að ganga upp. Arg! Ég er bara, eins og Vignir segir um okkur systurnar, svo afskaplega hrifnæm. Hef ekki gott af því.

Gerðist annars svo fræg í gær að fara í fyrsta skiptið í strætó milli Akraness og Reykjavíkur! Krissa náði reyndar í mig í Mosfellsbæinn þannig að ekki var þetta löng ferð. Var samt ekkert allt of ánægð með þessa ferð. Þetta var bara ósköp venjulegur strætó (ekki rúta) og maður sefur ekkert vel í strætósætum heldur skellir bara hausnum einhvernveginn aftan á lágu sætisbökin þegar maður dottar. En ég ætla samt ekki að væla neitt svakalega mikið yfir þessu því þetta er svo ódýrt.

Annars eru roadtrip-plön helgarinnar farin út í veður og vind. Eyþór á stórafmæli á morgun þannig að á föstudaginn fer stórfjölskyldan á Hereford að fagna því. Í staðinn fyrir road tripið verður því fyrsti þemamatarklúbburinn hjá Kristínu Gróu á laugardaginn og þemað er bleikt! Svei mér þá ef mér líst ekki bara betur á bleikann dinner í 101 RVK heldur en útilegu í rigningu og roki.


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.07.2008 01:04:11 / erla

Mini

Örfærsla... svona þar sem ég get ekki sofnað eftir kvöldvakt.
  • K&V eru komin heim :) Það er svoooo gaman.
  • Hitti líka Kristínu í gær í fyrsta skiptið í svooo langan tíma! Við kvartettinn "K&K&V&E" fórum á Dikta á Organ og höfðum varla tíma fyrir tónlistina því það var svo mikið catching up to do.
  • Sem dæmi um catching up þá voru allir meðlimir kvartettsins, fyrir utan mig, skyndilega komnir með tattoo á úlnliðinn!
  • Er að vinna fyrstu vinnuhelgina mína í sumar núna. Er vægast sagt orðin allt of góðu vön að vera í fríi um helgar!
  • Ætla í road trip um næstu helgi með Krissu, Vigga og Kristínu. Það verður væntanlega nothing short of excellent. Ét þar með orð mín um að ég gisti aldrei aftur í tjaldi (sagt eftir rigningarútileguna miklu á Glastonbury í fyrra hehe :D). 
  • Hef þó þann fyrirvara á að ef það verður rigning þá heimta ég að fara bara í Húsafell í bústaðinn. Ég áskil mér þann rétt þar sem ég er í aðra röndina örlítil prímadonna.
  • Var að fá mér göngustafi. Fór upp í fjall með þá (og Krissu;)). Það var snilld. Bakið mitt var sérstaklega himinlifandi með þessi kaup mín.

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.07.2008 20:50:17 / erla

Símahvað?

Þá er símahelgin mikla yfirstaðin. Af hverju símahelgin mikla? Jú ég fékk 3G síma hjá Ninnu fyrir helgina og fiktaði í honum alla helgina.. en þetta var hinsvegar símahelgin mikla aðallega vegna ferðafélaga minna norður, Evu og Brynhildar. Sms-sendingarnar stoppuðu hreinlega ekki hjá þeim sama hvort það var dagur eða nótt! Á tíðum átti ég hreinlega erfitt með að fylgjast með söguþræðinum svo flókinn var hann orðinn í þessari sápuóperu (fjölbreytnin í nöfnum söguhetjanna var ekkert sérstaklega mikil). Gaman að vera svona vinsæll ;) Ég nördaðist hinsvegar bara gegnum helgina á netinu í símanum :haha:


Brynhildur afmælisbarn, Valdís "hetja föstudagsins" og ég.

Akureyrin klikkar auðvitað ekki. Þarf nú minnst að segja frá því. Öllum að óvörum var hinsvegar föstudagskvöldið miklu skemmtilegra en laugardagskvöldið. Það er nú sjaldnast þannig. En veðrið var gott, ég fékk loksins litun og plokkun (og þar með nýtt andlit vil ég meina) og náði að versla mér smá (jább, þetta er svona eins og að fara í mini-utanlandsferð). Ferðafélagarnir voru svo auðvitað ekki af verri endanum og hvert gullkornið á fætur öðru féll. "Alsaklaus albínói" kom til dæmis við sögu og svo var einnig mikið talað um Plan A og Plan B... við enduðum nú samt allar í óplönuðu Plani C en það er nú önnur saga ;)


Hulda, Brynhildur, ég og Eva á laugardeginum... illa sveittar og heitar ;)

Annars er ég hreinlega að missa mig í spenningi yfir því að Krissa og Viggi eru að koma heim annað kvöld!! Jedúddamía hvað það verður gaman!! :) Get aftur orðið þriðja hjólið þangað til ég fer norður :D Nákvæmlega 26 klst og 50 mínútur í þau... neits, ég er sko ekki að telja niður ;)

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.07.2008 16:09:45 / erla

Kiss me.. I'm irish

Írsku dagarnir komnir og farnir. Þessi helgi var auðvitað algjör snilld, eins og við mátti búast. Útitónleikar og pottapartý á föstudeginum, afmæli hjá Thorstenio, powercleaning á íbúðinni hennar ömmu og Lopapeysan á laugardeginum og svo heiti potturinn og chill á pallinum í gær. Myndirnar eru á leiðinni á netið as we speak..

Svo er það bara Akureyrin eftir vinnu á fimmtudaginn, þar sem haldið verður upp á kvartaldarafmæli miss Brúnhilda og tjúttað á la Akureyri :D


Afskaplega sætir sjóarar á írsku dögunum :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.06.2008 11:20:15 / erla

Fest á filmu..

Þá eru Montréal myndirnar loksins komnar inn.


Við í Lyndonville, USA.


Ótrúlega hrifin af þessum túristamyndum


Skötuhjúin :)


Og hin skötuhjúin :)


Við ferðalangarnir í Vermont

Restin af myndunum er hér.


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.06.2008 15:00:59 / erla

Double damn

Arg... búin að vera heillengi að hlaða inn myndum frá Montréal og svo bara úps! Ekki nóg pláss fyrir þær. Pirri-pirr. En þetta vandamál verður leyst þegar næst gefst tími til þess.

Hvað Akrafjallsgöngu varðar þá fórum ég og Brynhildur upp á mettíma (að okkar mati:D). Gleymdum samt báðar myndavélum og ekki nóg með það heldur gleymdum við líka að skrifa í gestabókina á toppnum! Kjánar.

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 33
Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti